Leiðin að árangri
Ein af lykil framtíðaráherslum Birtu er að stýra starfsemi sjóðsins og eignasafni hans í átt að fullu kolefnishlutleysi (e. net-zero) árið 2040 og styðja þannig við loftslagsmarkmið Íslands og Parísarsamninginn.
Birta byggir kolefnisútreikninga sína á alþjóðlega viðurkenndri aðferðafræði Greenhouse Gas Protocol, út frá beinni og óbeinni losun gróðurhúsalofttegunda (GHL) sem er skilgreind á eftirfarandi hátt:
Birta styðst við PCAF (e. Partnership for Carbon Accounting Financials) staðalinn til ramma inn áætlaða losun gróðurhúsaloftegunda út frá eignasafni. PCAF-aðferðafræðin er alþjóðlegt samstarfsverkefni fjármálastofnanna sem vinnur að því þróa og innleiða samræmda nálgun til að meta og birta losun gróðurhúsaloftegunda (GHL) og byggir á áðurnefndum Greenhouse Gas Protocol.
Varðandi mælingar á GHL í rekstri er notast við reiknilíkan frá verkfræðistofunni Eflu en sjóðurinn naut ráðgjafar frá Eflu þegar kom að innleiðingu ISO 14001 umhverfisstaðlinum.
Markmið og helstu niðurstöður
Til að möguleiki sé á að ná tilsettu markmiði um kolefnishlutleysi árið 2040 þarf fyrst að ná utan um þá losun sem á sér stað í dag og í framhaldi setja fram raunhæf markmið um næstu skref. Unnið er að innleiðingu reglulegs eftirlits með fjármagnaðri losun samkvæmt Greehouse Gas Protocol aðferð. Að auki er mikilvægt að átta sig á þeirri áhættu sem hækkun hitastigs jarðar hefur á eignasafn Birtu og er unnið að gerð loftlagsáhættustefnu fyrir sjóðinn með það að markmiði að draga út þeirri áhættu.
Markmið Birtu er að ná utan um fjármagnaða losun fyrir allt eignasafnið, sem samanstendur af u.þ.b. 65% innlendum eignum og 35% erlendum eignum. Í dag liggja ekki fyrir nægar upplýsingar um erlenda eignasafnið svo unnt sé að birta fjármagnaða losun þess en það verður gert um leið og upplýsingar liggja fyrir.
Ákveðið var að reikna fjármagnaða losun aftur fyrir árið 2022 en ná yfir stærra hlutfall af innlendu eignasafni en gert var á síðasta ári. Upplýsingar fyrir 2023 liggja ekki að fullu fyrir og þar af leiðandi er ekki hægt að reikna fjármagnaðan útblástur yfir nema hluta safnsins.
Birta vann í samvinnu við Veru, sjálfbærnilausn Creditinfo, mat á kolefnislosun innlends eignasafns samtryggingardeildar fyrir árið 2022. Aðferðafræði PCAF nær enn sem komið er ekki yfir alla eignaflokka í safni Birtu en reiknað var fyrir eftirtalda flokka:
Lykilatriði aðferðafræðinnar er svokallað losunarhlutfall eða „attribution factor” sem gefur til kynna hversu mikið af losun fyrirtækja telst sem óbein losun fjármálafyrirtækisins. Losunarhlutfall er reiknað á mismunandi máta eftir eignaflokkum, sjá nánar hér.
Helstu niðurstöður voru eftirfarandi:
Vegin gagnagæði (innan umfangs) | |||||
4,0 | |||||
Hlutabréf | |||||
1,5 | |||||
3,5 | |||||
3,1 | |||||
Skuldabréf | |||||
- | |||||
1,0 | |||||
3,7 | |||||
2,0 | |||||
2,3 |