Ávöxtun og skipting eignasafns

Hrein eign til greiðslu lífeyris var samtals 623.782 milljónir króna í árslok 2023. Hrein nafnávöxtun eignasafnsins var 9,2% á árinu sem samsvarar 1,1% raunávöxtun.

Ávöxtun og skipting eignasafns samtryggingardeildar

Hrein eign samtryggingardeildar Birtu var 599.484 milljónir króna í árslok 2023. Hrein nafnávöxtun samtryggingardeildarinnar var 9,3% á árinu sem samsvarar 1,2% raunávöxtun

Myndin sýnir þróun á eignum samtryggingardeildar á árinu 2023. Í upphafi árs stóðu eignir í 545.270 milljónum króna. Þá námu iðgjaldagreiðslur á árinu 22.859 milljónum króna. Á móti var greiddur lífeyrir að fjárhæð 19.387 milljónir króna. Nettóinnflæði til deildarinnar nam því 3.202 milljónum króna á árinu. Þá voru hreinar fjárfestingartekjur yfir þetta tímabil 51.578 milljónir króna og rekstrarkostnaður 837 milljónir króna. Í árslok 2023 stóð hrein eign deildarinnar í 599.484 milljónum króna og hækkaði því á milli ára um 54.214 milljónir króna eða um 9,9%.

Vöxtur eigna og ávöxtun árið 2023

Ávöxtun samtryggingardeildar 2023

Hrein nafnávöxtun

Hrein raunávöxtun

Fjöldi virkra sjóðfélaga

Hreinar fjárfestingatekjur

Milljarðar

Hlutfall helstu eignaflokka í árslok 2023

Súluritið sýnir hlutfallslega skiptingu helstu eignaflokka samtryggingardeildar Birtu í árslok 2023. Hlutdeild verðbréfaeignar og innlána í erlendri mynt af heildareignum deildarinnar nam 37,6% í árslok 2023

Nafn- og raunávöxtun helstu eignaflokka samtryggingardeildar Birtu 2023

Taflan sýnir nafn- og raunávöxtun helstu eignaflokka samtryggingardeildar á árinu 2023

Nafnávöxtun Raunávöxtun
Ríkisskuldabréf 10,3% 2,1%
Skuldabréf sveitarfélaga 10,0% 2,0%
Skuldabréf lánastofnana 8,3% 0,3%
Fasteignaveðtryggð skuldabréf 10,9% 2,6%
Skuldabréf fyrirtækja 14,4% 5,9%
Innlend hlutabréf 1,9% -5,7%
Erlend hlutabréf 14,2% 5,7%
Sérhæfðar fjárfestingar 4,1% -3,6%

Samanburður eignaflokka 2023 og 2022

Taflan sýnir hlutfallslega skiptingu helstu eignaflokka samtryggingardeildar Birtu og fjárhæðir þeirra, annars vegar í árslok 2023 og hins vegar í árslok 2022

Í árslok 2023 Í árslok 2022
Hlutfallsleg skipting Í milljónum kr. Hlutfallsleg skipting Í milljónum kr.
Innlán 0,4% 2.511 1,3% 7.055
Ríkisskuldabréf 15,2% 96.125 16,6% 96.033
Skuldabréf sveitarfélaga 5,0% 24.097 4,2% 17.075
Skuldabréf lánastofnana 1,3% 7.869 1,6% 8.680
Fasteignaveðtryggð skuldabréf 16,4% 97.598 16,2% 87.849
Skuldabréf fyrirtækja 6,4% 37.898 6,3% 34.178
Innlend hlutabréf 14,6% 86.763 14,5% 78.733
Erlend hlutabréf 28,5% 169.642 28,1% 152.336
Sérhæfðar fjárfestingar 12,3% 73.548 11,2% 60.881
Þar af erlendar eignir 37,6% 224.115 36,8% 199.642

Helstu eignaflokkar innlendra skuldabréfa

Skífuritið sýnir hvernig skuldabréfaeign samtryggingardeildar Birtu skiptist í mismunandi eignaflokka í árslok 2023. Vægi eignaflokkana nam samtals 44,2% af eignasafninu. Þá var verðtryggingarhlutfall viðkomandi bréfa 83,9% í árslok 2023

Ávöxtun og skipting eignasafns séreignardeildar

Hrein eign séreignardeildar var 21.150 milljónir króna í árslok 2023 og hækkaði um 1.669 milljónir króna frá fyrra ári. Þá námu lífeyrisgreiðslur deildarinnar 889 milljónum króna á árinu 2023.

Sjóðurinn býður upp á þrjár mismunandi sparnaðarleiðir í séreignardeild og tilgreindri séreign. Þær eru innlánsleið, skuldabréfaleið og blönduð leið. Í blönduðu leiðinni eru bæði skuldabréf og hlutabréf á meðan eignir skuldabréfaleiðarinnar eru nánast eingöngu skuldabréf auk lítils hluta innlána. Þá eru eignir innlánsleiðarinnar, eins og nafnið gefur til kynna, einungis innlán.

Frá ársbyrjun 2022 hafa sjóðfélagar Birtu í tilgreindri séreign geta valið á milli þessara sömu þriggja sparnaðarleiða og séreignadeildin hefur boðið upp á. Fyrir þann tíma var einungis ein sparnaðarleið í boði fyrir tilgreindu séreignina.

Nafn- og raunávöxtun leiðanna á árinu 2023 ásamt 5 og 10 ára meðaltali hreinnar raunávöxtunar má sjá hér fyrir neðan.

Séreignardeild árið 2023

Ávöxtun og skipting eignasafns tilgreindrar séreignardeildar

Tilgreind séreign er sérstök tegund séreignarsparnaðar.

Sjóðfélagar geta valið að ráðstafa allt að 3,5% skylduiðgjaldsins í séreignarsjóð. Innistæða í tilgreindri séreign er eign þess sem leggur hana fyrir og um hana gilda sömu reglur og um hefðbundna séreign hvað íslensk erfðalög varðar, þ.e. tilgreind séreign erfist við fráfall.

Hrein eign tilgreindrar séreignardeildar var 3.148 milljónir króna í árslok 2023 og jókst um 597 milljónir króna frá fyrra ári. Þá námu lífeyrisgreiðslur deildarinnar 183 milljónum króna á árinu 2023.

Á árunum 2019-2021 var eingöngu ein sparnaðarleið í boði í tilgreindu séreigninni og er ávöxtunin því sú sama á því 3 ára tímabili í 5 ára meðaltalsútreikningnum.  Ávöxtun sl. tveggja ára tekur hins vegar mið af því hvaða sparnaðarleið var valin í ársbyrjun 2022, sbr. myndin hér á eftir.

Tilgreind séreign