Sjóðfélagalán

Sjóðfélagar sem greitt hafa til samtryggingardeildar hjá Birtu lífeyrissjóði geta sótt um húsnæðislán hjá sjóðnum, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

Sjóðfélagalán

Með lánareiknivél á heimasíðu sjóðsins er hægt að kynna sér hvaða tegund lána hentar best

Hámarks veðsetningarhlutfall er 65% af fasteignamati eða kaupverði í fasteignaviðskiptum nema þegar um fyrstu kaup sjóðfélaga er að ræða en þá er veðhlutfallið 75%. Hámarkslánsfjárhæðin eru 65 milljónir króna.

Hægt er að velja milli þriggja lánategunda:

  • Verðtryggð lán með föstum vöxtum
  • Verðtryggð lán með breytilegum vöxtum
  • Óverðtryggð lán með breytilegum vöxtum

Með lánareiknivél á heimasíðu sjóðsins er hægt að kynna sér hvaða tegund lána og samsetning hentar best. Allar lánategundir eru í boði með jöfnum greiðslum eða jöfnum afborgunum og lánstíminn getur verið á bilinu 5 – 40 ár.

Töluverð aukning varð í afgreiddum sjóðfélagalánum á árinu 2023 en heildarfjárhæð sjóðfélagalána stendur nánast í stað milli ára.

Afgreidd sjóðfélagalán

Fjárhæðir í milljónum kr.

2023 2022 2021 2020
Fjárhæð 8.364 6.655 4.600 31.679
Fjöldi lána 315 281 229 1.383
Meðalfjárhæð 26,6 23,7 20,1 22,9

Veitt sjóðfélagalán eftir lánategund

Fjárhæðir í milljónum kr.

2023 meðalfjárhæð 2022 meðalfjárhæð 2021 meðalfjárhæð
Veitt verðtryggð lán - fastir vextir 37 37,0 0 0,0 10 3,5
Veitt verðtryggð lán - breytilegir vextir 5.892 28,7 2.662 26,4 3.799 18,9
Veitt óverðtryggð lán - breytilegir vextir 2.435 22,3 3.993 22,2 791 31,6
Samtals veitt lán 8.364 6.655 4.600
Lánsréttur hjá Birtu lífeyrissjóði

Lánsrétt hafa sjóðfélagar sem uppfylla að lágmarki eitt eftirfarandi skilyrða:

  • Hafa greitt 6 af sl. 12 mánuðum í samtryggingardeild
  • Hafa greitt að lágmarki 36 mánuði til sjóðsins í samtryggingardeild
  • Sama rétt eiga lífeyrisþegar sem uppfylla skilyrði við töku lífeyris

Fasteignalán til neytenda

Lög nr. 118/2016 um fasteignalán til neytenda

Sjóðfélagalán falla undir lög nr. 118/2016 um fasteignalán til neytenda. Lögin leggja ríka skyldu á herðar lánveitendum um upplýsingamiðlun til neytenda. Lögin tóku gildi 1. apríl 2017 og leystu af hólmi eldri lög nr. 33/2013, hvað fasteignalán varðar.

Reglur um hámarksgreiðslubyrði fasteignalána

Reglur um hámarksgreiðslubyrði fasteignalána sem tóku fyrst gildi í desember 2021 eru enn í gildi. Það er Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands sem setur reglurnar um hámark á greiðslubyrði fasteignalána í samræmi við 27. gr. laga nr. 118/2016, um fasteignalán til neytenda.

Samkvæmt reglunum má hámark greiðslubyrðarhlutfall á nýjum fasteignalánum vera 35% af mánaðarlegum ráðstöfunartekjum lántaka en 40% fyrir fyrstu kaupendur. Við útreikning á greiðslubyrðarhlutfallinu skulu lánveitendur miða greiðslubyrði óverðtryggðra lána við 40 ára lánstíma en við 25 ára lánstíma fyrir verðtryggð lán. Við útreikning skal að lágmarki miða við samningsvexti viðkomandi lána, þó ekki lægri en 5,5% af óverðtryggðum lánum og 3% vexti af verðtryggðum lánum. Lántakar sem standast skilyrðin út frá hámarkslánstíma geta áfram tekið styttri lán með hærri greiðslubyrði ef þeir standast greiðslumat m.v. þær forsendur. Jafnframt verður áfram hægt að taka lengri verðtryggð lán en til 25 ára.

Lánsupphæð, lánstími og lánskjör

Hámarkslánsfjárhæð sjóðfélagalána eru 65 milljónir króna, hámarksveðhlutfall er 65% af fasteignamati eða kaupverði ef um fasteignaviðskipti er að ræða en allt að 75% ef um fyrstu kaup er að ræða.

Vextir á sjóðfélagalánum hækkuðu á árinu 2023, verðtryggðir breytilegir vextir voru í ársbyrjun 2,40% og voru komnir í 2,72% í árslok og óverðtryggðir vextir fóru úr 7,60% í 10,35% í árslok. Breytilegu verðtryggðu vextirnir fylgja þróun vaxta á verðtryggðum ríkisskuldabréfum og óverðtryggðu vextirnir fylgja meginvöxtum Seðlabanka Íslands.

Lánsupphæð, lánstími og lánskjör

Lánstími lána er 5 – 40 ár, lágmarksfjárhæð er kr. 1 millj. kr. og var að hámarki kr. 65 millj. kr. og hægt er að velja milli jafnra afborgana eða jafnra greiðsla af lánunum.

Afgreiðsla lána

Sjóðfélagar sækja um lán með rafrænum skilríkjum á heimasíðu Birtu, fá rafrænt greiðslumat og afla sjálfir nær allra gagna sem nauðsynleg eru

Miklar framfarir hafa átt sér stað í tengslum við afgreiðslu sjóðfélagalána á undanförnum árum og hefur það sparað mikinn tíma og fyrirhöfn bæði fyrir sjóðfélaga og starfsmenn. Nær allar umsóknir um lán og skilmálabreytingar koma inn með rafrænum hætti en enn þarf að undirrita á pappír veðskuldabréf og skilmálabreytingar lánanna en það þarf að þinglýsa þessum skjölum á pappír hjá Sýslumanni.

Það er markmið Birtu að hefja rafrænar þinglýsingar á veðskuldabréfum og þeim skilmálabreytingum sem þarf að þinglýsa sem allra fyrst.

Ávinningur rafrænna þinglýsinga er mjög mikill bæði fyrir lántaka og lánveitendur en biðtími styttist til muna, ekki þarf að ferðast með pappírsskjöl á milli aðila og handvirkt vinnuframlag minnkar.

Verkefni um rafrænar þinglýsingar hjá Sýslumannsembættunum hefur verið í gangi frá árinu 2019 og staðan er þannig að nú er mögulegt að þinglýsa nær öllum tegundum veðskuldabréfa og skilmálabreytinga sem tengjast þeim rafrænt. Lánveitendur þurfa að aðlaga sín kerfi þannig að hægt sé að tengjast rafrænu þinglýsingakerfi embættanna og Birta er á lokametrunum í þeirri vinnu. Prófanir eru langt komnar og stefnum við á að hefja rafrænar þinglýsingar eins fljótt og kostur er. Stjórnarfrumvarp til laga um rafrænar skuldaviðurkenningar hefur verið lagt fram á þingi og vonandi munu lögin taka gildi sem allra fyrst.

Staða, vanskil og uppgreiðsla sjóðfélagalána

Í árslok 2023 voru lán til sjóðfélaga um 60,3 milljarðar króna en voru 59,8 milljarðar árið áður. Þetta eru um 9,7% af heildareignum sjóðsins borið saman við 10,5% árið áður. Vanskil sjóðfélagalána í árslok 2023 námu um 17 milljónum króna og er það 0,028% sjóðfélagalána, vanskilahlutfallið í árslok 2022 var lægra eða 0,013% en þó að hlutfallið sé að hækka nokkuð milli ára þá eru vanskil áfram mjög lág.

Uppgreiðslur lána lækkuðu á milli ára en greidd voru upp 433 lán á árinu að fjárhæð 6,8 milljarðar króna samanborið við 600 lán að fjárhæð 10 milljarða árið áður.

Staða sjóðfélagalána í árslok

fjárhæðir í milljónum króna

2023 Fjöldi Meðalfjárhæð 2022 Fjöldi Meðalfjárhæð
Verðtryggð lán - fastir vextir 3.648 236 15,4 3.771 262 14,4
Verðtryggð lán - breytilegir vextir 34.905 1956 17,8 30.318 1.950 15,5
Óverðtryggð lán - breytilegir vextir 21.778 1238 17,6 25.695 1.397 18,4
Samtals 60.331 3430 17,6 59.784 3.609 16,6

Skattfrjáls ráðstöfun séreignarsparnaðar

Þann 1. júlí 2017 tóku gildi lög um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð en þau heimila rétthöfum að verja uppsöfnuðu iðgjaldi séreignar til kaupa á fyrstu íbúð og jafnframt að ráðstafa séreignariðgjaldi inn á höfuðstól láns sem tryggt er með veði í fyrstu íbúð, upp að ákveðnu hámarki yfir tíu ára samfellt tímabil. Almenn heimild til að nýta séreignasparnað vegna kaupa á íbúðarhúsnæði til eigin nota eða til ráðstöfunar upp í höfuðstól láns sem tekið var vegna kaupanna var framlengd til ársloka 2024.