Iðgjöld

Skyldusparnaður leggur grunn að lífinu eftir starfslok og tryggir ævilangan lífeyri og áfallalífeyri.

Þróun fjölda sjóðfélaga og iðgjaldagreiðslur samtryggingardeildar

Launamenn, atvinnurekendur og þeir sem stunda sjálfstæða starfsemi skulu greiða iðgjöld í lífeyrissjóð frá 16 ára til 70 ára aldurs. Aðild að Birtu lífeyrissjóði byggist á ákvæðum kjarasamninga stéttarfélaga, aðild fyrirtækja eða á almennum forsendum. Í sjóðnum eru launamenn sem starfa hjá aðildarfyrirtækjum og/eða byggja starfskjör sín á kjarasamningum stéttarfélaga. Þeim er líka heimil aðild sem hvorki eru bundnir kjarasamningum tengdra stéttarfélaga né njóta ráðningarbundinna starfskjara sem byggð eru á kjarasamningum en óska eigi að síður eftir aðild að sjóðnum.

Í árslok 2023 áttu 102.741 réttindi í samtryggingardeild Birtu lífeyrissjóðs. Á árinu 2023 greiddu 19.146 iðgjald til samtryggingardeildar en 18.748 árið 2022. Virkir sjóðfélagar voru 16.934, það er að segja þeir sem greiddu að jafnaði iðgjöld til sjóðsins með reglubundnum hætti í mánuði hverjum. Alls greiddu 6.684 launagreiðendur iðgjöld til sjóðsins og námu iðgjaldagreiðslur til samtryggingardeildar 22.626 milljarðar króna að meðtöldum réttindaflutningi og endurgreiðslum. Framlag ríkisins til jöfnunar á örorkubyrði nam 233.563 milljónum króna á árinu en var 191.817 milljónir króna á árinu 2022.

Fjöldi greiðandi sjóðfélaga
2023
2022
Fjöldi virkra sjóðfélaga
2023
2022

Iðgjaldagreiðslur til séreignardeildar og tilgreindrar séreignardeildar

Á árinu 2023 námu iðgjaldagreiðslur til séreignardeildar, fyrir réttindaflutninga og endurgreiðslur, 1.052 milljónum króna en 985 milljónum króna árið áður. Það er 6,8% aukning frá fyrra ári. Iðgjaldagreiðslur til tilgreindrar séreignardeildar, fyrir réttindaflutninga og endurgreiðslur, námu 585 milljónum króna á árinu 2023 samanborið við 542 milljónir árið 2022.

Fjöldi rétthafa í séreignardeild
2023
2022
Virkir rétthafar í séreignardeild
2023
2022
Skipting iðgjalda
eftir atvinnugreinum
Sérhæfð byggingarstarfsemi14%
Bygging húsnæðis, þróun bygginga11%
Sala, viðgerðir og viðhald á vélum6%
Framleiðsla á málmvörum5%
Heildverslun5%
Opinber stjórnsýsla5%
Rafmagns-, gas- og hitaveitur4%
Smásöluverslun4%
Veitingasala og þjónusta4%
Matvælaframleiðsla3%
Starfsemi arkitekta og verkfræðinga3%
Framleiðsla málma2%
Þjónustustarfsemi á sviði upplýsingatækni2%
Framleiðsla á öðrum ótöldum vélum og tækjum2%
Rekstur gististaða2%
Annað28%
20 stærstu greiðendur
til Birtu lífeyrissjóðs
Ríkissjóður Íslands
Marel Iceland
Rarik ohf.
Rio Tinto á Íslandi
Ístak hf.
Atvinnuleysistryggingarsjóður
Samskip hf.
Kaupfélag Skagfirðinga
Landsvirkjun
Veitur ohf.
GR Verk ehf.
Fæðingarorlofssjóður
Brimborg ehf.
Eykt ehf.
BERJAYA HOTEL
N1 ehf.
Norðurál Gundartangi ehf.
Securitas hf.
Samkaup hf.
Íslensk verkmiðlun ehf.