Launamenn, atvinnurekendur og þeir sem stunda sjálfstæða starfsemi skulu greiða iðgjöld í lífeyrissjóð frá 16 ára til 70 ára aldurs. Aðild að Birtu lífeyrissjóði byggist á ákvæðum kjarasamninga stéttarfélaga, aðild fyrirtækja eða á almennum forsendum. Í sjóðnum eru launamenn sem starfa hjá aðildarfyrirtækjum og/eða byggja starfskjör sín á kjarasamningum stéttarfélaga. Þeim er líka heimil aðild sem hvorki eru bundnir kjarasamningum tengdra stéttarfélaga né njóta ráðningarbundinna starfskjara sem byggð eru á kjarasamningum en óska eigi að síður eftir aðild að sjóðnum.
Í árslok 2023 áttu 102.741 réttindi í samtryggingardeild Birtu lífeyrissjóðs. Á árinu 2023 greiddu 19.146 iðgjald til samtryggingardeildar en 18.748 árið 2022. Virkir sjóðfélagar voru 16.934, það er að segja þeir sem greiddu að jafnaði iðgjöld til sjóðsins með reglubundnum hætti í mánuði hverjum. Alls greiddu 6.684 launagreiðendur iðgjöld til sjóðsins og námu iðgjaldagreiðslur til samtryggingardeildar 22.626 milljarðar króna að meðtöldum réttindaflutningi og endurgreiðslum. Framlag ríkisins til jöfnunar á örorkubyrði nam 233.563 milljónum króna á árinu en var 191.817 milljónir króna á árinu 2022.
Á árinu 2023 námu iðgjaldagreiðslur til séreignardeildar, fyrir réttindaflutninga og endurgreiðslur, 1.052 milljónum króna en 985 milljónum króna árið áður. Það er 6,8% aukning frá fyrra ári. Iðgjaldagreiðslur til tilgreindrar séreignardeildar, fyrir réttindaflutninga og endurgreiðslur, námu 585 milljónum króna á árinu 2023 samanborið við 542 milljónir árið 2022.
| Sérhæfð byggingarstarfsemi | 14% |
| Bygging húsnæðis, þróun bygginga | 11% |
| Sala, viðgerðir og viðhald á vélum | 6% |
| Framleiðsla á málmvörum | 5% |
| Heildverslun | 5% |
| Opinber stjórnsýsla | 5% |
| Rafmagns-, gas- og hitaveitur | 4% |
| Smásöluverslun | 4% |
| Veitingasala og þjónusta | 4% |
| Matvælaframleiðsla | 3% |
| Starfsemi arkitekta og verkfræðinga | 3% |
| Framleiðsla málma | 2% |
| Þjónustustarfsemi á sviði upplýsingatækni | 2% |
| Framleiðsla á öðrum ótöldum vélum og tækjum | 2% |
| Rekstur gististaða | 2% |
| Annað | 28% |
| Ríkissjóður Íslands | |
| Marel Iceland | |
| Rarik ohf. | |
| Rio Tinto á Íslandi | |
| Ístak hf. | |
| Atvinnuleysistryggingarsjóður | |
| Samskip hf. | |
| Kaupfélag Skagfirðinga | |
| Landsvirkjun | |
| Veitur ohf. | |
| GR Verk ehf. | |
| Fæðingarorlofssjóður | |
| Brimborg ehf. | |
| Eykt ehf. | |
| BERJAYA HOTEL | |
| N1 ehf. | |
| Norðurál Gundartangi ehf. | |
| Securitas hf. | |
| Samkaup hf. | |
| Íslensk verkmiðlun ehf. |